Pierre-Emerick Aubameyang var hetja Marseille sem vann Lyon, 3-2, í frönsku deildinni í kvöld. Bæði mörk Aubameyang komu á lokakafla leiksins.
Síðustu vikur hafa verið erfiðar hjá Marseille. Roberto De Zerbi var látinn fara frá félaginu og það verið í frjálsu falli en svo virðist sem Habib Beye, nýr þjálfari liðsins, sé að finna taktinn.
Að vísu komst Lyon yfir snemma leiks með marki Corentin Tolisso en varamaðurinn Igor Paixao jafnaði metin með frábæru marki fyrir utan teig snemma í þeim síðari.
Hinn 18 ára gamli Frakki, Remi Himbert, skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Lyon og kom þeim yfir þegar stundarfjórðungur var eftir en það var þá sem Aubameyang bretti upp ermar og tók málin í sínar hendur.
Hann jafnaði með skoti af stuttu færi eftir sendingu Paixao á 81. mínútu og tryggði síðan stigin þrjú í uppbótartíma. Ótrúlega mikilvægur sigur hjá Marseille sem er í 4. sæti með 43 stig og lifir Meistaradeildardraumurinn enn góðu lífi.
Hákon Arnar Haraldsson byrjaði hjá Lille sem vann dramatískan 1-0 sigur á Nantes.
Íslenski landsliðsmaðurinn lék 70 mínútur í leiknum, en sigurmarkið kom ekki fyrr en eftir að hann var farinn af velli, nánar tiltekið á fjórðu mínútu í uppbótartíma.
Markið gerði Nathan Ngoy, sem var einmitt líka hetja liðsins er það komst áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar á dögunum.
Lille er í 5. sæti deildarinnar með 40 stig eftir úrslit dagsins en Nantes í næst neðsta sæti deildarinnar.
Úrslit og markaskorarar:
Marseille 3 - 2 Lyon
0-1 Corentin Tolisso ('3 )
1-1 Igor Paixao ('52 )
1-2 Remi Himbert ('76 )
2-2 Pierre-Emerick Aubameyang ('81 )
3-2 Pierre-Emerick Aubameyang ('90 )
Lille 1 - 0 Nantes
1-0 Nathan Ngoy ('90 )
Paris FC 1 - 0 Nice
1-0 Marshall Munetsi ('26 )
Rautt spjald: Thibault De Smet ('90, Paris FC )
Metz 0 - 1 Brest
0-1 Ludovic Ajorque ('69 )
Rautt spjald: Daouda Guindo ('22, Brest )
Lorient 2 - 2 Auxerre
0-1 Marvin Senaya ('1 )
1-1 Bamba Dieng ('19 )
1-2 Josue Casimir ('24 )
2-2 Bamba Dieng ('29 )
Athugasemdir


