Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 23:14
Brynjar Ingi Erluson
Barcola kom PSG í góða stöðu
Barcola skoraði áttunda deildarmarkið í sigrinum á Le Havre
Barcola skoraði áttunda deildarmarkið í sigrinum á Le Havre
Mynd: EPA
Franski landsliðsmaðurinn Bradley Barcola kom Paris Saint-Germain í fjögurra stiga forystu á toppnum með 1-0 sigri liðsins á Le Havre á útivelli í kvöld.

Barcola skoraði markið á 37. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf Lee Kang-In.

Frakkinn stangaði boltann í netið sem var hans áttunda í deildinni á þessari leiktíð.

PSG er á toppnum með 57 stig, fjórum meira en Lens, sem virðist vera eina liðið sem ætlar að veita Evrópu, bikar og deildarmeisturunum samkeppni í ár.

Folarin Balogun og Simon Adingra skoruðu mörk Mónakó í 2-0 sigrinum á Angers.

Paul Pogba var ekki með Mónakó en hann er að glíma við meiðsli í kálfavöðva.

Mónakó er í 7. sæti með 37 og í baráttu um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Rennes lagði Toulouse að velli, 1-0. Arnaud Nordin gerði sigurmarkið á 27. mínútu eftir að markvörður Toulouse missti boltann frá sér og á Arnaud sem skoraði.

Rennes er í 5. sæti deildarinnar með 40 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner