Norður-írski miðvörðurinn Daniel Ballard verður áfram í herbúðum Sunderland, en hann hefur framlengt samning sinn við félagið til 2029.
Ballard, sem er 26 ára gamall, er einn af máttarstólpum nýliðanna og átti stóran þátt í að koma liðinu aftur upp í efstu deild.
Hann hefur verið frábær á fyrsta tímabili sínu í ensku úrvalsdeildinni og fengið mikið lof fyrir frammistöðuna.
Norður-Írinn hefur sýnt félaginu hollustu sína með því að framlengja samning sinn til þriggja ára með möguleika á ári til viðbótar.
Ballard, sem er uppalinn hjá Arsenal, á 33 A-landsleiki fyrir Norður-Írland.
We delighted to announce that Dan Ballard has signed a new contract until summer 2029, with a Club option of an additional year ????
— Sunderland AFC (@SunderlandAFC) March 1, 2026
Athugasemdir

