Penninn var á lofti í Vesturbænum í dag en fjórir leikmenn skrifuðu undir nýja samninga við KR út tímabilið 2028.
Fyrirliðinn Aron Sigurðarson og Eiður Gauti Sæbjörnsson voru lykilmenn í liðinu síðasta sumar en þeir skoruðu báðir 14 mörk.
Fyrirliðinn Aron Sigurðarson og Eiður Gauti Sæbjörnsson voru lykilmenn í liðinu síðasta sumar en þeir skoruðu báðir 14 mörk.
Hinn bráðefnilegi Sigurður Breki Kárason skrifaði einnig undir nýjan samning en hann var yngsti leikmaðurinn til að byrja leik í efstu deild þegar hann var í byrjunarliðinu gegn Val á síðustu leiktíð aðeins 15 ára gamall.
Þá skrifaði Birgir Steinn Styrmisson einnig undir nýjan samning en hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli og spilaði þrjá leiki með KV á síðustu leiktið og einn með KR í Bestu deildinni.
Athugasemdir



