Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona, Darwin Nunez er eftirsóttur og Rodri er orðaður við Real Madrid, þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Marcus Rashford (28), lánsmaður frá Man Utd, hefur samþykkt þriggja ára samning við Barcelona og spænska félagið ætlar að virkja 26 milljón punda kaupákvæði í samningnum hans. (Sport)
Nicolas Jackson, 24, framherji Chelsea sem er á láni hjá Bayern, og Serhou Guirassy, 29, framherji Dortmund, eru á óskalisita Milan. (Gazzetta dello Sport)
Aston Villa hefur áhuga á Jackson þar sem félagið stefnir á að leyfa Ollie Watkins, 30, að fara í sumar. (Football Insider)
Real Madrid vill fá Rodri, 29, miðjumann Man City. Spánverjinn mun kosta um 44 milljónir punda. (Radio Marca)
Anthony Gordon, 25, leikmaður Newcastle, hefur verið orðaður við Arsenal. Talað hefur verið um að hann eigi tvö ár eftir af samningi sínum en hann á í raun fjögur ár eftir. (Sky Sports)
Atletico Madrid og Juventus hafa blandað sér í baráttuna við Newcastle um Darwin Nunez, 26, sem hefur fallið niður goggunarröðina hjá sádi arabíska liðinu Al-Hilal. (Football Insider)
Franski framherjinn Randal Kolo Muani, 27, sem er á láni hjá Tottenham frá PSG er efstur á óskalista Juventus fyrir sumarið. (Tuttosport)
Gareth Southgate, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Man Utd en segist ekki vera í leit að starfi. (Football Boardroom Podcast)
Massimiliano Allegri, stjóri Milan, hefur gert lítið úr þeim sögusögnum að hann sé að íhuga framtíð sína. (Football Italia)
Athugasemdir



