Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
   fim 04. maí 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Jónas Guðni: Hann er ekki einu sinni kominn með bílpróf
Jónas Guðni Sævarsson.
Jónas Guðni Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er rosalega jöfn deild eins og í fyrra. Við ætluðum beint upp aftur í fyrra en þetta er miklu erfiðara en maður gerir sér grein fyrir," segir Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði Keflvíkinga.

Keflvíkingum er spáð efsta sæti í spá fyrirliða og þjálfara í Inkasso-deildinni í sumar.

Mikil meiðsli hafa verið hjá Keflvíkingum en leikmenn eru að koma til að sögn Jónasar.

„Við erum brothættir, sumir af eldri leikmönnunum. Við erum með ágætis breidd og við erum með unga stráka sem eru að taka skemmtilegt skref. Þeir eru skrefinu nær að verða tilbúnir," sagði Jónas.

„Á miðjunni er ungur strákur sem heitir Ísak (Óli Ólafsson). Hann er ekki einu sinni kominn með bílpróf. Það verður gaman að fylgjast með honum. Hann er búinn að vera rosalega sterkur í vetur og spurningin er hvort hann nái að halda þessu áfram."

Fyrsti leikur Keflvíkinga er annað kvöld en liðið heimsækir þá Leikni í Breiðholtið. „Við förum með krafti í þann leik. Við erum búnir að undirbúa okkur vel," sagði Jónas.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner