Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
Siggi Höskulds: Það er fokking óþolandi
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Þrennt sem stóð upp úr hjá Jóa Kalla
Álitið: Hver verður stoðsendingahæstur?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
   þri 05. september 2017 22:17
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Birkir Már: Fengum mjög góðar upplýsingar frá Freysa
Icelandair
Birkir Már í leiknum í kvöld
Birkir Már í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta vera bara nokkuð solid, fyrri hálfleikur var aðeins jafnari. Þeir voru aðeins meira með boltann og voru sprækir í byrjun og við vorum í smá basli svona fyrstu tuttugu en svo fór þetta að jafnast út og í seinni hálfleik vorum við með fulla stjórn á þessu," sagði Birkir Már Sævarsson eftir 2-0 sigur Íslands á Úkraínu í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  0 Úkraína

„Mér fannst þeir koma mjög sterkir inn í leikinn og voru greinilega tilbúnir í leikinn og voru mjög sprækir og sköpuðu sér smá færi og svona en eftir það þá bara fannst mér við gera þetta vel."

„Við fengum mjög góðar upplýsingar frá Freysa, hann var búinn að fylgjast með þeim vel og hann var búinn að kynna þá fyrir okkur, mér og Hödda, þannig að við vissum alveg hvað við vorum að fara í."

„Við fengum náttúrulega mark snemma í seinni hálfleik og það breytir leikjum. Þá gátum við aðeins lagst til baka og beitt skyndisóknum og svo fengum við seinna markið og þá fannst mér við sigla þessu heim nokkuð örugglega."

„Mér fannst við vinna boltann vel og vorum að halda boltanum og skapa okkur færi. Við hefðum nú geta sett þriðja markið þarna og klárað leikinn alveg, það hefði verið mjög þægilegt. Annars sköpuðu þeir sér ekki neitt, svo þetta var solid."

„Þetta er bara undir okkur komið að við þurfum bara að vinna okkar tvo leiki sem eru eftir. Svo ef mér skjátlast ekki þá er Króatía með aðeins betri markatölu þannig að þeir þurfa að tapa stigum eitthvers staðar, sem er kannski ekkert svakalega líklegt, þannig að ef við vinnum okkar alla vega þá erum við búnir að gera það sem við getum gert."
Slapp
banner