Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 22:30
Kári Snorrason
Glódís í liði vikunnar eftir mark sitt gegn Man Utd
Glódís fagnar vel og innilega.
Glódís fagnar vel og innilega.
Mynd: EPA
Glódís Perla Viggósdóttir var valin í lið umferðarinnar í Meistaradeildinni eftir að hafa skorað mikilvægt mark í sigri Bayern Munchen gegn Manchester United.

Um er að ræða seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bæjarar unnu fyrri leikinn 3-2 í Manchester en United komst yfir í leiknum á þriðjudag og þar með jöfnuðu einvígið.

Á 81. mínútu kom Glódís til bjargar er hún stangaði hornspyrnu í netið. Markið hefði það dugað til að koma þeim áfram en Linda Dallmann sá um að gulltryggja sætið í undanúrslitin með marki þremur mínútum síðar.

Bayern á verðugt verkefni sér fyrir höndum í undanúrslitum en þar mætir liðið Barcelona. Fyrri leikurinn fer fram þann 25. apríl og sá síðari viku seinna.


Slapp
banner