Neymar hefur sætt harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir umdeild ummæli sem hann lét falla eftir leik Santos gegn Remo.
Santos vann leikinn 2-0 en Neymar var ósáttur við dómara leiksins, Sávio Pereira Sampaio, sem gaf honum gult spjald undir lokin og setti hann þar með í bann fyrir næsta leik gegn Flamengo.
Santos vann leikinn 2-0 en Neymar var ósáttur við dómara leiksins, Sávio Pereira Sampaio, sem gaf honum gult spjald undir lokin og setti hann þar með í bann fyrir næsta leik gegn Flamengo.
Í viðtali eftir leik sagði Neymar að dómarinn hefði: „Vaknað á túr og komið þannig til leiks.“ Ummælin hafa vakið mikla reiði og hafa verið gagnrýnd harðlega þar sem þau eru sögð bæði niðrandi og kvenfyrirlítandi.
Samkvæmt fréttum gæti Neymar átt yfir höfði sér allt að 12 leikja bann vegna ummælanna.



