Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   lau 04. apríl 2026 12:53
Brynjar Ingi Erluson
Hlín fór af velli í fyrri hálfleik - Íris skoraði
Kvenaboltinn
Íris skoraði eina mark Fiorentina
Íris skoraði eina mark Fiorentina
Mynd: Instargam
Íris Ómarsdóttir var á skotskónum með Fiorentina sem tapaði fyrir Juventus, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í dag, en landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir þurfti að fara af velli áður en fyrri hálfleikurinn var úti.

Hlín og Íris voru báðar í byrjunarliði Fiorentina en Hlín yfirgaf völlinn á 36. mínútu.

Þremur mínútum síðar jafnaði Íris metin sem var hennar sjötta í öllum keppnum á þessu tímabili.

Katla Tryggvadóttir kom inn af bekknum í síðari hálfleiknum hjá Fiorentina undir lok leiks. Fiorentina er í 7. sæti með 26 stig eftir átján leiki.

Birta Georgsdóttir var í fremstu víglínu hjá Genoa sem beið lægri hlut fyrir Napoli, 4-1, á útivelli.

Það gengur ekkert hjá Genoa sem er í neðsta sæti deildarinnar með níu stig og ekki unnið leik síðan í nóvember.

Sveindís Jane Jónsdóttir lék allan leikinn í liði Angels City sem tapaði fyrir Orlando Pride, 2-1, með svekkjandi marki seint í uppbótartíma í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum. Angels City er í öðru sæti með níu stig eftir fjórar umferðir.
Slapp
banner
banner