Emelía Óskarsdóttir skoraði og lagði upp í 5-0 stórsigri FCK á Thisted í umspili um sæti í dönsku úrvalsdeildina í dag.
FCK er að gera sér vonir um að fara upp um deild annað árið í röð og er á góðri leið með það.
Emelía var allt í öllu hjá FCK. Hún lagði upp þriðja mark liðsins og skoraði síðan fimmta markið í leiknum.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir var ekki með FCK í leiknum, en liðið er nú í öðru sæti með 9 stig. Efstu fjögur liðin í umspilsriðlinum spila í efstu deild á næsta tímabili.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru báðar í byrjunarliði Inter sem vann Lazio 5-2 í Seríu A. Karólína fór af velli eftir rúman klukkutíma.
Telma Ívarsdóttir sat á varamannabekk Inter sem er í öðru sæti deildarinnar með 37 stig, sex stigum frá toppnum.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir sneri aftur á völlinnn í 2-0 sigri Parma á Ternana.
Hún hefur misst af síðustu leikjum vegna meiðsla en kom aftur í hópinn í dag og spilaði síðustu tíu mínúturnar. Það var við hæfi að Parma var að sækja sinn fyrsta sigur síðan í október.
Parma er í 9. sæti með 15 stig, sex stigum fyrir ofan fallsæti.
Guðrún Hermannsdóttir kom inn af bekknum hjá Esbjerg sem tapaði fyrir Álaborg, 3-2, í fallriðli dönsku B-deildarinnar. Esbjerg er án stiga í neðsta sæti.


