Chelsea hefur greint frá mesta fjárhagstapi sem sést hefur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Tap félagsins á tímabilinu 2024/25 nam 262 milljónum punda og er það um 65 milljónum punda meira en fyrra met Manchester City frá árinu 2011.
Félagið heldur þó fram að það sé innan ramma fjárhagsreglna (PSR) sem leyfa 105 milljón punda tap yfir þriggja ára tímabil.
Chelsea er þó borubratt fyrir næsta ársreikningi en þar munar mestu um um 85 milljónir punda í verðlaunafé fyrir sigur í HM félagsliða ásamt um 80 milljóna punda frá sjónvarpstekjum úr Meistaradeildinni.
Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að tap félagsins orsakist m.a. af sektum og tapi tengdum leikmönnum eins og t.d. Raheem Sterling, sem var látinn fara, og Mykhailo Mudryk, sem er til rannsóknar eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.


