Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   lau 04. apríl 2026 06:00
Kári Snorrason
Caicedo tók Enzo sér til fyrirmyndar og daðraði lítillega við Real Madrid
Mynd: EPA
Moises Caicedo, miðjumaður Chelsea, virðist ætla að taka liðsfélaga sinn Enzo Fernandez sér til fyrirmyndar og hefur viðrað áhuga á Real Madrid.

Í samtali við spænska miðilinn AS var Caicedo spurður út í hvort hann hefði áhuga á að spila fyrir spænska liðið glotti hann og sagði; „Maður veit aldrei í fótbolta.“

„Ég er núna samningsbundinn Chelsea. En sannleikurinn er sá að ég hef aldrei hugsað um annan klúbb, ekki einu sinni hugsað að fara frá London. En í enda dags veit maður aldrei í fótboltanum. Ég vil bara njóta mín, vera með samning og spila eins lengi og guð leyfir.“

Ekvadoranum til varnar eru ummælin ekki jafn ákveðin og ummæli Enzo Fernandez sem verður í kælingu í næstu tveimur leikjum liðsins vegna þeirra.

Það virðist vera vinsælt hjá leikmönnum að viðra áhuga á spænskum liðum þessa dagana, en Marc Cucurella ræddi á dögunum um tilfinningar sínar gagnvart Barcelona og Rodri ræddi um Real Madrid sem besta félag í heimi.
Slapp
banner