Chelsea tekur á móti C-deildarliði Port Vale í 8-liða úrslitum enska bikarsins á Stamford Bridge klukkan 16:15 í dag.
Manchester City varð fyrsta liðið til að komast í undanúrslitin með því að pakka Liverpool saman, 4-0, á Etihad og verður fróðlegt að sjá hvaða lið mun fylgja þeim þangað.
Chelsea hefur gengið illa upp á síðkastið en Liam Rosenior vonast til að koma liðinu aftur í gang.
Enzo Fernandez, varafyrirliði Chelsea, er í agabanni og verður ekki með í leiknum en Rosenior hefur tilkynnt byrjunarlið sitt.
Joao Pedro og Cole Palmer eru báðir í liðinu. Andrey Santos og Romeo Lavia eru á miðsvæðinu, en byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.
Palmer er með fyrirliðabandið í fjarveru Enzo og Reece James.
Chelsea: Sanchez, Gusto, Fofana, Tosin, Hato, Lavia, Santos, Estevao, Palmer, Joao Pedro.
Port Vale: Gauci, Hall, Gabriel, Garrity, Walter, Ojo, Gordon, Waine, Sherif, John, Humphreys.
Your Chelsea team news today! ?#CFC | #EmiratesFACup pic.twitter.com/ZvjlJ6CtYZ
— Chelsea FC (@ChelseaFC) April 4, 2026


