Jason Daði Svanþórsson sneri aftur inn á völlinn með Grimsby í dag eftir fimm mánaða fjarveru vegna meiðsla.
Hann kom inn á eftir 72. mínútur í 3-1 tapi Grimsby gegn Harrogate Town í ensku D-deildinni.
Jason hefur verið að glíma við þrálát hnémeiðsli sem hafa haldið honum fjarri vellinum meirihluta tímabils. Hann hefur einungis komið við sögu í sjö leikjum á tímabilinu.
Hann var síðast í leikmannahóp Grimsby þann 14. mars en kom þá ekki við sögu. Jason spilaði síðast þann 8. nóvember.

Grimsby er í 10. sæti í ensku D-deildinni, þremur stigum á eftir umspilssæti, en liðið á þó leik og leiki til góða á félögin fyrir ofan.
Jason verður samningslaus í sumar og hefur í vetur verið orðaður við heimkomu til Íslands. Félög sem hafa verið nefnd í því samhengi eru meðal annars Breiðablik og KR.