Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   þri 09. september 2014 22:01
Gunnar Birgisson
Bjössi Hreiðars: Tókum þá í nefið
Bjössi Hreiðarss alltaf léttur
Bjössi Hreiðarss alltaf léttur
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Hauka og sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net var kampakátur með leik sinnar þjóðar í dag líkt og sennilega allir Íslendingar. Leikur Jón Daða og Gylfa vakti sérstaka athygli hjá Bjössa og hlutu þeir mikið lof frá Haukaþjálfaranum.

,,Þetta var bara meiriháttar leikur, ótrúlega góður frá upphafi til enda. Þeir hafa greinilega nýtt þessa viku sem þeir tóku hérna í að sleppa æfingaleikjum og kortlagt Tyrkina ótrúlega vel og sett þennan leik upp frábærlega, þetta var bara æði," sagði Sigurbjörn í samtali við Fótbolta.net.

,,Ég bjóst ekki við Jón Daða í liðinu og hann kom meiriháttar inn í þennan leik, hann og Gylfi fannst mér vera frábærir í dag, einnig Ari Skúla í vinstri bakverðinum, Tyrkirnir reyndu að fara á hann, en það var allt lokað. Mér fannst Jón Daði koma gríðarlega á óvart í þessum leik, ég vissi að þetta væri góður leikmaður en hann sýndi ótrúlega hluti í dag."

,,Mér fannst við eiga þessa miðju klárlega í dag, þegar Gylfi fékk boltann var hann svo öruggur á honum, það greinilega skín af honum allt sjálfstraust og geta og kraftur. Hann var frábær í dag."

Arda Türan var ekki mikið að stíga í sviðsljósið í leiknum í dag. ,,Hann átti eina sendingu í seinni hálfleik og þá sá maður hvað þessi gaur getur. En hann var ekki sérstakur í dag, ekki frekar en Tyrkirnir, við bara tókum þá í nefið."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
banner