Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 15. mars 2026 22:42
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Milan mistókst að saxa á forskot Inter
Gustav Isaksen gerði sigurmark Lazio
Gustav Isaksen gerði sigurmark Lazio
Mynd: EPA
Lazio 1 - 0 Milan
1-0 Gustav Isaksen ('26 )

Danski sóknarmaðurinn Gustav Isaksen var hetja Lazio sem vann 1-0 sigur á Milan í Seríu A á Ítalíu í dag.

Isaksen skoraði sigurmarkið á 26. mínútu eftir að Adam Marusic kom löngum bolta fram völlinn. Isaksen fór illa með Pervis Estupinan sem rann á grasinu og komst Isaksen einn gegn Mike Maignan og skoraði.

Milan fékk urmul af færum til að koma til baka. Christian Pulisic fór illa með góð færi.

Í seinni hálfleiknum kom Zacary Athekame boltanum í netið eftir hornspyrnu Luka Modric en markið var dæmt af þar sem þessi leikmaður U21 árs landsliðs Sviss handlék boltann í aðdragandanum.

Rafael Leao, ein af stjörnum Milan-liðsins, bauð upp á smá dramatík um miðjan síðari hálfleikinn er honum var skipt af velli, en hann var allt annað en sáttur og kunni ekki vel við knúsið sem hann fékk frá Max Allegri, þjálfara liðsins.

Christopher Nkunku kom inn í hans stað og átti fína spretti, en Milan fann ekki jöfnunarmarkið og urðu lokatölur 1-0 Lazio í vil.

Slæm úrslit fyrir Milan sem átti möguleika á að saxa forystu nágranna þeirra í Inter niður en köstuðu því frá sér. Inter er því áfram með átta stiga forystu en Milan í öðru sæti. Lazio er í 9. sæti með 40 stig.

Lazio verður án Maurizio Sarri, þjálfara liðsins, í næsta leik en hann sá rautt spjald seint í uppbótartíma.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner