Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 15. mars 2026 20:58
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Spyrntu sér frá botninum með langþráðum sigri - Tíu leikmenn Roma töpuðu fyrir Como
Pisa náði í annan sigur sinn á tímabilinu
Pisa náði í annan sigur sinn á tímabilinu
Mynd: EPA
Como er í Meistaradeildarsæti
Como er í Meistaradeildarsæti
Mynd: EPA
Botnlið Pisa vann annan leik sinn á tímabilinu er það bar sigur úr býtum gegn Cagliari, 3-1, á heimavelli sínum í dag. Tíu leikmenn Roma töpuðu á meðan fyrir Como, 2-1, í Como.

Tímabil Pisa hefur verið dapurt svo vægt sé til orða tekið en það hafði aðeins landað einum sigri á öllu tímabilinu áður en það tók á móti Cagliari í dag.

Sá sigur kom gegn Cremonese í byrjun nóvember og landaði það öðrum sigrinum í dag.

Stefano Moreo skoraði úr vítaspyrnu á 9. mínútu en Rafiu Durosinmi, leikmaður Pisa, ógnaði sigrinum undir lok fyrri hálfleiks er hann sá rauða spjaldið.

Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Pisa en Antonio Caracciolo færði meiri ró yfir Pisa-liðið með tveimur mörkum á tveimur mínútum staðan orðin 3-0.

Leonardo Pavoletti minnkaði muninn á 67. mínútu áður en Adam Obert, liðsfélagi hans, sá rauða spjaldið og var þá jafnt í liðum.

Lokatölur í Pisa, 3-1. Pisa spyrnti sér frá botninum og er nú í næst neðsta sæti með 18 stig, sjö stigum frá öruggu sæti en Cagliari í 15. sæti með 30 stig.

Bologna marði 1-0 sigur á Sassuolo þar sem Thijs Dallinga gerði sigurmarkið eftir aðeins sex mínútna leik.

Tíu leikmenn Roma töpuðu fyrir Como, 2-1, í Como. Heimamenn lentu undir snemma leiks er Artem Dovbyk skoraði úr vítaspyrnu en allt breyttist í þeim síðari.

Anastasios Douvikas jafnaði metin og stuttu síðar sá brasilíski bakvörðurinn Wesley rauða spjaldið í liði Roma. Miðvörðurinn Diego Carlos tryggði Como síðan endurkomusigurinn rúmum tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Como er í 4. sæti með 54 stig og sem stendur í Meistaradeildarsæti en Roma er í 6. sæti með 51 stig.

Pisa 3 - 1 Cagliari
1-0 Stefano Moreo ('9 , víti)
2-0 Antonio Caracciolo ('52 )
3-0 Antonio Caracciolo ('54 )
3-1 Leonardo Pavoletti ('67 )
Rautt spjald: ,Rafiu Durosinmi, Pisa ('37)Adam Obert, Cagliari ('81)

Sassuolo 0 - 1 Bologna
0-1 Thijs Dallinga ('6 )

Como 2 - 1 Roma
0-1 Donyell Malen ('7 , víti)
1-1 Anastasios Douvikas ('59 )
2-1 Diego Carlos ('79 )
Rautt spjald: Wesley, Roma ('64)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner