
Vestri er kominn í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa unnið Þór, 2-0, á Kerecis-vellinum á Ísafirði í kvöld.
Heimamenn voru ívið betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og kom ekki á óvart þegar Gustav Kjeldsen kom liðinu í 1-0 á 30. mínútu leiksins.
Guðmundur Arnar Svavarsson tók hornspyrnu inn á teiginn og á Eið Aron Sigurbjörnsson sem skallaði boltann fyrir Kjeldsen sem skoraði örugglega.
Sex mínútum síðar tvöfaldaði Vladimir Tufegdzic. Eiður Aron átti konfektsendingu langt fram á Gunnar Jónas Hauksson sem keyrði fram, lagði boltann til hliðar á Tufegdzic sem var ekki í neinum vandræðum með að skora.
Í þeim síðari reyndu Þórsarar eins og þeir gátu að koma til baka, en þá var röðin komin að Benjamin Schubert, markverði Vestra, að skila inn góðu framlagi.
Hann varði dauðafæri frá Sverri Páli Ingasyni og annað skot frá Clement Bayiha.
Það reyndi minna á hann eftir það og náði Vestri að sigla þessum sigri heim og tryggja sæti sitt í undanúrslitum.
Athugasemdir