Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 21:57
Elvar Geir Magnússon
Mjólkurbikarinn: Fram náði í síðasta undanúrslitasætið
Freyr Sigurðsson var hetja Fram.
Freyr Sigurðsson var hetja Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 0 - 1 Fram
0-1 Freyr Sigurðsson ('68 )
Lestu um leikinn

Fram náði í fjórða og síðasta undanúrslitasætið í Mjólkurbikarnum en liðið vann 1-0 útisigur gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ. Sigurmarkið kom á 68. mínútu.

„Fyrsta markið er komið! Vuk með flotta fyrirgjöf fyrir á varamanninn Frey sem er kominn í dauðafæri og getur ekki annað gert en að skalla þetta inn!" skrifaði Kjartan Leifur Sigurðsson sem textalýsti leiknum.

Framarar unnu sterkan sigur sem var í raun aldrei í hættu eftir að markið kom. Mosfellingar voru aldrei líklegir til að jafna þennan leik eftir að hafa lent undir og því ljóst að Fram spilar til undanúrslita i bikarnum.

Dregið verður í undanúrslitin í beinni á RÚV 2 á eftir en hægt er að fylgjast með drættinum í textalýsingu hér á Fótbolta.net. Auk Fram eru Vestri, Stjarnan og Valur í pottinum.


Athugasemdir
banner