Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 19:47
Elvar Geir Magnússon
Mjólkurbikarinn: Sjáðu markið sem kom Val í undanúrslit
Hólmar skoraði eina mark leiksins með skalla.
Hólmar skoraði eina mark leiksins með skalla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 0 - 1 Valur
0-1 Hólmar Örn Eyjólfsson ('16 )
Lestu um leikinn

Valur vann útisigur gegn ÍBV í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld og verður í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin í markaþætti á RÚV 2 í kvöld.

Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði eina mark leiksins með skalla í fyrri hálfleik

„Markið kom upp úr hornspyrnu en leikurinn var frekar jafn allan leikinn og hefði getað dottið hvorum megin," skrifaði Tryggvi Guðmundsson, fréttamaður Fótbolta.net, í textalýsingu frá leiknum

Vestri og Stjarnan komust í undanúrslit í gær og seinna í kvöld ræðst það hvort Afturelding eða Fram verði síðasta liðið í undanúrslitin. Viðureign liðanna hefst núna klukkan 20:00 í Mosfellsbænum.

Hér að neðan má sjá mark Vals í Vestmannaeyjum frá RÚV:


Athugasemdir
banner