Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   sun 19. apríl 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Wijnaldum fer frá Al Ettifaq í sumar
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Gini WIjnaldum yfirgefur sádi-arabíska félagið Al Ettifaq í sumar en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Wijnaldum, sem er 35 ára gamall, gekk í raðir félagsins frá Paris Saint-Germain fyrir þremur árum.

Hann hefur komið að 52 mörkum í 96 leikjum og verið einn af bestu mönnum liðsins á þessari leiktíð með fimmtán mörk í deild- og bikar.

Blaðamaðurinn Ben Jacobs sagði félagið hafa ákveðið að leyfa honum að fara í sumar af tæknilegum ástæðum en Romano segir það ekki rétt heldur liggja fjárhagslegar ástæður að baki.

Hollendingurinn fær því ekki nýjan samning og mun halda á vit nýrra ævintýra.
Slapp
banner
banner