Spænski miðillinn AS segir spænska fótboltasambandið komið með nóg af hegðun fyrrum fótboltamannsins Gerard Pique sem á meirihluta í B-deildarliðinu Andorra, en getur ekkert gert vegna stöðu hans í félaginu.
Pique, sem er einn skreyttasti fótboltamaður Spánar, keypti meirihlutann í Andorra í desember árið 2018 en er ekki forseti félagsins.
Hann hefur þó mikil völd innan félagsins og hefur meðal annars verið í þjálfarateyminu og hjálpað því að komast upp í B-deildina. Á þessu tímabil hefur hann verið innan handar, en gegnir þó engu sérstöku hlutverki.
Pique er ekki með sæti á bekknum og ekki heldur í VIP-stúkunni heldur er hann með eigið svæði í miðri stúku sem veitir honum greiða leið að búningsklefunum, en þar liggur einmitt vandamálið enda hefur hann verið viðriðinn mörg atvik í leikmannagöngunum á þessari leiktíð.
Andstæðingar Andorra hafa ekki viljað tjá sig opinberlega um hegðun Pique til þess að koma í veg fyrir ágreining, en þau eru orðin verulega pirruð á stöðunni.
Þetta er að skapa mikinn hausverk fyrir spænska fótboltasambandið og aganefndina sem hefur til þess aðeins getað sektað Pique fyrir hegðun hans á leikjum. Á þessu tímabili var sett ný lög í regluverk fótboltasambandsins að félög geta átt von á harðari refsingum ef félögin gerast sek um ítrekuð brot. Það hefur hins vegar ekki átt við um Andorra og Pique.
Félagið hefur verið sektað nokkrum sinnum fyrir hegðun hans í garð dómara og annarra liða og bara nú síðast gegn Malaga þar sem Pique veittist að aðstoðardómara leiksins.
„Eftir að flautað var til loka fyrri hálfleiks gekk herra Gerard Pique Bernabeu upp að aðstoðardómaranum með ógnandi hætti og öskraði á hann ásamt því að benda á hann í nokkra sentimetra fjarlægð þar sem hann talaði um þetta sem sögulegt rán og að hann ætlaði sér að birta færslu um þetta á Twitter (X í dag). Þessi einstaklingur sýndi einnig óviðeigandi hegðun í garð fulltrúa frá Malaga og þurftu fulltrúar Andorra og öryggisverðir að fjarlægja hann,“ segir í dómaraskýrslu leiksins.
Andorra var sektað um 12 þúsund evrur eftir þetta atvik en félagið tekur alla ábyrgð þar sem Pique starfar á gráu svæði. Þar sem hann á meirihluta í félaginu og er ekki forseti er ekki hægt að sekta hann persónulega. Hann heyrir ekki undir viðurlög aganefndarinnar þó hann sé auðkenndur en á sama tíma óheimill aðili.
Hingað til hefur Andorra aðeins fengið sektir en það er aðeins tímaspursmál hvenær þolinmæði sambandsins mun renna á þrotum og hvað það mun gera, það er að segja ef Pique heldur áfram þessari óviðeigandi hegðun. Í augnablikinu virðist hann ósnertanlegur.
Andorra er í tíunda sæti B-deildarinnar með 49 stig.



