Serge Gnabry, leikmaður Bayern München, verður líklega frá næstu þrjá til fjóra mánuði eftir að hafa rifið lærvöðva á æfingu. Sky í Þýskalandi greinir frá.
Bæjarar sögðu frá meiðslum Gnabry á heimasíðu sinni en ekki kom fram hversu lengi hann yrði frá.
Sky hefur heimildir fyrir því að meiðslin eru alvarleg og að Gnabry verði ekki meira með á þessu tímabili.
Talið er að hann verði frá í þrjá til fjóra mánuði og ef fréttir Sky reynast sannar er HM úr myndinni hjá Gnabry sem hefur verið ótrúlega mikilvægur fyrir Bæjara á leiktíðinni með tíu mörk og ellefu stoðsendingar.
Lothar Matthaus, fyrrum leikmaður Bayern og þýska landsliðsins, segist þó vongóður um að meiðslin séu ekki eins alvarleg og fullyrt er á þýsku miðlunum.
„Ég veit ekki nákvæmlega hversu alvarlegt þetta er, en yfirleitt erum við að tala um sex til átta vikur. Auðvitað samt fer þetta eftir alvarleika meiðslanna, en eitt er víst og það er að hann verður í kapphlaupi við tímann um að komast á HM,“ sagði Matthaus.



