Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   sun 19. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gæti farið aftur heim í Barcelona
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona eru að skoða þann möguleika að fá spænska vinstri bakvörðinn Alex Grimaldo aftur til félagsins frá Bayer Leverkusen.

Þessi þrítugi leikmaður er uppalinn í Barcelona en spilaði aldrei með aðalliðinu.

Hann lék fjögur ár með varaliðinu áður en hann skipti yfir í Benfica árið 2016.

Ferill hans fór á flug í Portúgal þar sem hann vann fjölda titla og var valinn tvisvar í lið ársins áður en Leverkusen keypti hann árið 2023.

Á fyrsta tímabili hans með Leverkusen varð liðið deildarmeistari í fyrsta sinn og það án þess að tapa leik. Grimaldo var í liði ársins og hefur síðan verið mikilvægur leikmaður liðsins, en nú gæti hann fengið að upplifa drauminn og spila með uppeldisfélaginu.

Sport segir Barcelona vera að íhuga tilboð í Grimaldo sem er sagður falur fyrir 12 milljónir evra í sumar. Samningur hans rennur út á næsta ári og vill Leverkusen ekki missa hann frítt.

Barcelona var nálægt því að kaupa hann síðasta sumar fyrir 15 milljónir evra en þurfti að losa sig við Gerard Martin til þess að geta skráð Grimaldo. Martin hafnaði því að ganga í raðir Wolves og varð því ekkert af skiptunum hjá Grimaldo.

Atlético Madríd, Juventus og Milan eru einnig áhugasöm, en Barcelona er í forgangi hjá Grimaldo sem á 12 A-landsleiki fyrir spænska landsliðið.
Slapp
banner
banner