Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   sun 19. apríl 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle tilbúið að taka á sig 35 milljóna punda tap
Mynd: EPA
Newcastle United telur það hafa verið mistök að kaupa Kongómanninn Yoane Wissa frá Brentford og er það opið fyrir því að selja hann á tombóluverði í sumar.

Newcastle eltist við Wissa allt síðasta sumar og náði á endanum að ganga frá kaupunum á lokadegi gluggans.

Hann var fenginn til að fylla í skarð Alexander Isak sem var seldur fyrir metfé til Liverpool

Wissa var meiddur fyrri hluta tímabilsins og lék ekki fyrsta leikinn fyrr en í desember. Hann hefur ekki átt fast sæti í liðinu og aðeins gert eitt deildarmark.

Newcastle keypti Wissa á 50 milljónir punda frá Brentford, en i Paper segir félagið opið fyrir því að selja hann fyrir aðeins 15 milljónir í sumar.

Félagið tekur einnig fjárhaginn inn í dæmið með því að endurjafna launastrúktúrinn og nota peninginn síðan í að fjárfesta í leikmönnum í aðrar stöður.
Slapp
banner
banner
banner