Munoz, Gallagher og Adams orðaðir við Man Utd - Man City vill fá Marc Guehi
banner
   mið 21. desember 2022 12:15
Elvar Geir Magnússon
Vivell: Chelsea að smíða mest spennandi verkefni í heimsfótboltanum
Chelsea hefur staðfest ráðningu á Christopher Vivell í stórt starf bak við tjöldin, hann hefur verið ráðinn tæknilegur stjórnandi félagsins.

„Chelsea er að smíða mest spennandi verkefni heimsfótboltans og ég er gríðarlega stoltur af því að vera ráðinn til félagsins. Það eru svo miklir möguleikar fyrir félagið að halda áfrm að ná árangri, þróast og vaxa enn frekar," segir Vivell.

„Undir Todd Boehly og nýjum eigendum, stjórans Graham Potter og teyminu hans, er skýr hugmyndafræði sem studd er af frammistöðugreiningu, gögnum og nýsköpun. Ég hlakka til að taka þátt í því."

Vivell á að sjá um leikmannakaup en hann er maðurinn sem kom að félagaskiptum Erling Braut Haaland og Karim Adeyemi til RB Salzburg.

Vivell vann fyrir RedBull, bæði Salzburg og Leipzig, en hann yfirgaf síðarnefnda liðið í október vegna ágreinings.

Meðal leikmanna sem Chelsea vill fá er króatíski miðvörðurinn Josko Gvardiol hjá Leipzig. Stuðningsmenn Chelsea vona að ráðningin á Vivell styrki stöðu félagsins í að fá leikmanninn eftirsótta sem spilaði frábærlega á HM.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Man Utd 16 7 5 4 30 26 +4 26
7 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
8 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Bournemouth 16 5 6 5 25 28 -3 21
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner