Cesar Azpilicueta mun leggja skóna á hilluna eftir síðasta leik Sevilla á tímabilinu sem er gegn Celta Vigo á morgun.
Sá spænski greinir frá ákvörðuninni í færslu á samfélagsmiðlum sínum.
Sá spænski greinir frá ákvörðuninni í færslu á samfélagsmiðlum sínum.
Azpilicueta, sem er 36 ára, er eflaust þekktastur fyrir tíma sinn hjá Chelsea. Hann spilaði yfir 500 leiki fyrir Lundúnaliðið og vann þar alla titla sem hægt var að vinna.
Eftir að hann yfirgaf Chelsea fór hann til Atlético Madrid og lék þar í tvö tímabil áður en hann hélt til Sevilla síðasta haust. Hann á jafnframt að baki 44 landsleiki.


