Robbie Keane hefur sagt upp störfum sem þjálfari ungverska félagsins Ferencvaros. Hann tók við liðinu í janúar í fyrra.
Liðið vann deildina það tímabil og liðið vann síðan ungverska bikarinn í ár. Liðið hafnaði í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Györ, á þessu tímabili.
Liðið vann deildina það tímabil og liðið vann síðan ungverska bikarinn í ár. Liðið hafnaði í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Györ, á þessu tímabili.
Hann stýrði Maccabi Tel Aviv áður og vann ísraelsku deildina tímabilið 2023/24.
Hann hefur ekki tekið ákvörðun um næsta skref en hann er opinn fyrir því að vera áfram í Evrópu eða snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. Hann er fyrrum leikmaður Tottenham og var orðaður við félagið eftir að Thomas Frank var rekinn. Þá er hann einnig fyrrum leikmaður Celtic og hefur verið orðaður við félagið.




