Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 16:00
Kári Snorrason
Freysi hissa á Solbakken
Ósammála vini sínum Solbakken.
Ósammála vini sínum Solbakken.
Mynd: EPA
Freyr Alexanderson, þjálfari Brann, er hissa á kollega sínum Stale Solbakken, þjálfara norska landsliðsins, að hafa ekki valið Felix Horn Myhre í landsliðshóp Noregs sem fer á HM.

Felix Horn Myhre hefur verið lykilmaður á miðjunni hjá Brann, en liðið er í 6. sæti norsku deildinni eftir tíu leiki.

Hann á að baki sjö landsleiki fyrir Noreg og hefur skorað í þeim tvö mörk.

„Þetta kemur mér mikið á óvart. Hann hefur gert allt sem hann gat til þess að fá kallið. Ég er ósammála vini mínum Stale í þetta sinn, en ég þarf svo sem ekki að vera sammála honum,“ sagði Freyr í samtali við TV 2 í Noregi.




Slapp