Yan Diomande, vængmaður RB Leipzig, er aðalskotmark Liverpool í sumar. The Athletic greinir frá þessu.
Þýska félagið vill halda þessum 19 ára gamla fílabeinsstrendingi en tilboð upp á tæplega 90 milljónir punda gæti orðið til þess að hann yfirgefi félagið.
Þýska félagið vill halda þessum 19 ára gamla fílabeinsstrendingi en tilboð upp á tæplega 90 milljónir punda gæti orðið til þess að hann yfirgefi félagið.
Liverpool er sagt vera í góðri stöðu í baráttunni en PSG hefur einnig áhuga á honum.
Enska félagið þarf að finna arftaka Mohamed Salah og það er talað um að félagið hafi skoðað Diomande mjög vel. Hann skoraði 13 mörk og lagt upp tíu í 36 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.


