Chelsea og Arsenal vilja Kroupi - Man Utd bjartsýnt á að landa Ederson og Tonali - Inter hefur áhuga á Kepa
   fös 22. maí 2026 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fimm bestu HM lögin
Shakira og Pique kynntust við gerð tónlistarmyndbandsins fyrir Waga Waga. Þau eru ekki lengur saman í dag.
Shakira og Pique kynntust við gerð tónlistarmyndbandsins fyrir Waga Waga. Þau eru ekki lengur saman í dag.
Mynd: Twitter
Það eru rétt tæpar þrjár vikur í fyrsta leik á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó og spennan er heldur betur farin að magnast fyrir mótinu.

Það er orðin hefð fyrir hvert heimsmeistaramót að gefa út sérstakt lag og þau eru misgóð en skoðum núna fimm bestu HM lögin að mati Fótbolta.net.

Næst inn: Nessun Dorma
Þetta er ekki hefðbundið HM-lag. Óperuverkið varð órjúfanlegur hluti af HM 1990 á Ítalíu og hefur síðan verið hluti af sögu heimsmeistaramótsins. Dramatík, tilfinningar og stórkostleg uppbygging, nákvæmlega eins og HM á að vera.



Næst inn: Carnaval De Paris
Carnaval de Paris er kannski ekki fyrsta lagið sem kemur upp í hugann þegar rætt er um opinber HM-lög, en það á engu að síður sérstakan sess í hjörtum fótboltaaðdáenda. Lagið kom út fyrir HM 1998 í Frakklandi og varð fljótt eitt þekktasta fótboltalag tíunda áratugarins. Þó La Copa de la Vida hafi kannski stolið mestu sviðsljósinu árið 1998, þá eru einhverjir sem halda því fram að Carnaval de Paris sé hið raunverulega „cult classic“ HM-laga. Lag sem hefur lifað langt fram yfir mótið sjálft.



5. Live It Up - Nicky Jam, Will Smith & Era Istrefi - HM 2018
Live It Up frá HM 2018 er mögulega umdeildasta lagið á þessum lista. Sumum fannst það ekki ná sömu hæðum og forverarnir, á meðan aðrir hafa með árunum tekið lagið í sátt sem sterka minningu frá HM í Rússlandi. Það hjálpar líka að mótið sjálft var ótrúlega skemmtilegt og Ísland var auðvitað á meðal þátttökuþjóða. Fyrir marga hefur lagið því hækkað í áliti einfaldlega vegna þess hvaða móti það fylgdi.



4. We Are One - Pitbull, Jennifer Lopez og Claudia Leitte - HM 2014
We Are One fékk misjafnar viðtökur þegar það kom út fyrir HM í Brasilíu 2014, en með tímanum hefur lagið unnið sér inn ákveðinn sess hjá mörgum fótboltaáhugamönnum. Brasilískur taktur, sumarstemning og stór nöfn á bak við hljóðnemann.Lagið fangar vel litríka umgjörð mótsins í Brasilíu. Margir tengja lagið ósjálfrátt við James Rodriguez í stuði.



3. La Copa de la Vida - Ricky Martin - HM 1998
„Go, go, go! Ale, ale, ale!“ Það þarf ekki meira en nokkur orð til að kveikja á nostalgíunni. La Copa de la Vida frá HM 1998 í Frakklandi er fyrir marga gullstaðallinn þegar kemur að HM-lögum. Lagið er enn spilað á leikvöngum víða um heim og kemur manni alltaf í gírinn. Ef Waka Waka er konungur nýrri kynslóðarinnar, þá er La Copa de la Vida gamla stórveldið sem neitar að gefa frá sér krúnuna.



2. Wavin' Flag - K'naan - HM 2010
Wavin' Flag var tæknilega séð ekki opinbert HM-lag FIFA en það er ekki annað hægt en að tengja þetta lag við HM í Suður-Afríku. Coca-Cola lagði sitt af mörkum og niðurstaðan varð eitt áhrifamesta fótboltalag síðari ára. Lagið hafði aðra tilfinningu en hefðbundin HM-lög, meira hjarta, meiri saga og sterk skilaboð. Fyrir heila kynslóð er HM 2010 einfaldlega blanda af Waka Waka og Wavin' Flag.



1. Waka Waka (This Time for Africa) - Shakira - HM 2010
Þegar rætt er um besta HM-lag sögunnar er erfitt að líta framhjá Waka Waka. Lagið varð nánast samheiti við HM í Suður-Afríku árið 2010 og lifir enn sterkt í minni sextán árum síðar. Taktar, vuvuzelur og sólskin sem blandast allt saman í einn ótrúlegan nostalgíupakka. Shakira sló í gegn á heimsvísu með laginu sem náði langt út fyrir fótboltann sjálfan. Fyrir marga er einfaldlega ekki hægt að heyra fyrstu sekúndurnar án þess að sjá Andrés Iniesta skora sigurmarkið í úrslitaleiknum eða Paul kolkrabba spá fyrir um næsta úrslitaleik. Shakira og spænski varnarmaðurinn Gerard Pique kynntust við gerð myndbandsins og voru lengi saman en þau eru því miður ekki miklir vinir í dag.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner