Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   mán 24. nóvember 2014 18:15
Magnús Már Einarsson
Gary Martin: Reyni að fá bronsskó næst
Adidas
Gary Martin með gullskó adidas 2014.
Gary Martin með gullskó adidas 2014.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er búinn að bíða eftir þessu í tvö ár," sagði Gary Martin framherji KR léttur í bragði þegar hann tók við gullskó adidas í dag fyrir að vera markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar í sumar.

Gary skoraði þrettán mörk í sumar en hann tryggði sér gullskóinn með þrennu gegn Þór í lokaumferðinni. Mörkin þar eru þó ekki í mestu uppáhaldi.

,,Markið gegn FH stendur upp úr. Það kom í veg fyrir að þeir myndu vinna deildina. Ef ég hefði ekki skorað þá hefði leikurinn í lokaumferðinni hjá FH ekki verið jafn stór."

Gary á ár eftir af samningi sínum við KR en erlend félög hafa sýnt honum áhuga að undanförnu.

,,Ég þarf að ræða við KR og sjá hvað gerist á næstu vikum. Ég veit af áhuga erlendis en þangað til kemur formlegt tilboð þá veit ég ekkert. Ég æfi með KR og legg hart að mér. Þetta breytist fljótt. Ég er leikmaður KR í augnablikinu en maður veit ekki."

Í fyrra endaði Gary sem næstmarkahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni og þá fékk hann silfurskóinn. ,,Ég reyni að fá bronsskó næst, þá ég safn af skóm," sagði Gary léttur í bragði.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner