Þýskaland 3 - 0 Frakkland
1-0 Nelson Weiper ('8 )
2-0 Nick Woltemade ('14 )
3-0 Brajan Gruda ('90 )
1-0 Nelson Weiper ('8 )
2-0 Nick Woltemade ('14 )
3-0 Brajan Gruda ('90 )
Þýska U21 árs landsliðið mætir Englendingum í úrslitaleik Evrópumótsins eftir að hafa unnið Frakka, 3-0, í Slóvakíu í kvöld.
Þjóðverjar hafa litið mjög vel út á mótinu og náðu þeir að gera út um leikinn á fyrstu fimmtán mínútunum í kvöld.
Nelson Weiper, leikmaður Mainz, skoraði þriðja mark sitt á mótinu á 8. mínútu. Nick Woltemade kom boltanum inn á teiginn á Paul Nebel sem setti boltann í þverslá og út á Weiper sem stýrði boltanum í markið.
Sex mínútum síðar tvöfaldaði Woltemade forystuna. Frakkar töpuðu boltanum klaufalega fyrir framan teiginn og fékk Woltemade boltann í gegn. Markvörður Frakka varði vippuskot framherjans sem fékk boltann aftur og skoraði þá af öryggi.
Noah Atubolu, markvörður Þjóðverja þurfti að taka á stóra sínum um miðjan síðari hálfleikinn er Frakkar fengu algert dauðafæri tveimur metrum frá marki, en snögg viðbrögð markvarðarins héldu Þjóðverjum í forystu.
Varamaðurinn Brajan Gruda, sem spilar með Brighton á Englandi, rak síðasta naglann í kistu Frakka undir lok leiks og eru það Þjóðverjar sem fara í úrslitaleikinn.
Andstæðingurinn er ríkjandi Evrópumeistarar Englands og fer leikurinn fram á laugardag.
Athugasemdir