Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Langt á milli Barcelona og Man Utd
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Barcelona er í viðræðum við Manchester United þar sem félagið reynir að fá Marcus Rashford til sín á lánssamningi með kaupmöguleika.

The Times greinir hins vegar frá því að Man Utd vilji helst ekki lána leikmanninn út. Stjórnendur félagsins vilja selja Rashford fyrir 40 milljónir punda.

Það þykir augljóst að Rashford er spenntur fyrir þessum mögulegu félagaskiptum og hefur Hansi Flick þjálfari Barca áhuga á leikmanninum. Fjárhagsvandræði Barcelona koma þó í veg fyrir að félagið geti fest kaup á kantmanninum knáa. Spánarmeistararnir eru einbeittir að því að safna pening fyrir kaupum á Nico Williams.

Þá hafa launakröfur Rashford virkað fráhrindandi, enda er hann að fá rúmlega 300 þúsund pund í vikulaun. Það er svipaður samningur og Bukayo Saka er á hjá Arsenal.

Rashford er 27 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi sínum við Manchester United. Hann virðist vera búinn að brenna flestar brýr að baki sér hjá uppeldisfélaginu með hegðun sinni síðastliðið ár.
Athugasemdir
banner