Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 21:11
Brynjar Ingi Erluson
HM félagsliða: Dortmund tók toppsætið - Bellingham lagði upp sigurmarkið
Mynd: EPA
Borussia Dortmund tók toppsæti F-riðils með því að merja 1-0 sigur á Ulsan í HM félagsliða í kvöld.

Daniel Svensson skoraði sigurmark Dortmund á 36. mínútu eftir svakalegan klaufagang í vörn Ulsan. Jobe Bellingham fékk boltann í miðjum teignum, lagði hann út á Svensson sem skoraði með föstu ristarskoti.

Sigurinn kom Dortmund í 7 stig og þar sem Mamelodi Sundowns náði að gera markalaust jafntefli við Fluminense er það Dortmund sem tekur toppsætið, en Fluminense með 5 stig í öðru sæti.

Dortmund og Fluminense mæta efstu tveimur liðunum í E-riðli, en Inter, River Plate og Monterrey eru í baráttunni um þau sæti.

Úrslit og markaskorarar:

Borussia D. 1 - 0 Ulsan
1-0 Daniel Svensson ('36 )

Mamelodi Sundowns 0 - 0 Fluminense
Athugasemdir