Sænska félagið Djurgården hefur sett sig í samband við AGF vegna íslenska landsliðsmannsins Mikaels Nevilel Anderson.
Mikael er einn besti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar og hefur verið síðustu ár.
Hann er með kaupákvæði í samningnum sem gerir félögum kleift að kaupa hann fyrir 2 milljónir evra.
Áhuginn er mikill og segir sænski miðillinn Expressen að Djurgården hafi sett sig í samband við AGF með það í huga að festa kaup á Íslendingnum.
Mikael, sem kom að fimmtán mörkum með AGF á síðasta tímabili, er samningsbundinn félaginu til 2028 og verður kaupákvæðið virkt út samninginn.
Djurgården er í 9. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 15 stig eftir tólf leiki. Djurgården mætti Chelsea í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar í vetur.
Athugasemdir