Fyrstu leikjunum er lokið í Fótbolta.net bikarnum þar sem neðrideildalið tókust á í 32-liða úrslitum.
Reynir Sandgerði, Ýmir, Kári og KFA eru komin áfram í næstu umferð eftir sigra.
Sandgerðingar fóru létt með Hafnir þar sem Jordan Smylie, Bergþór Ingi Smárason og Magnús Magnússon skoruðu mörkin til að koma þeim áfram í næstu umferð.
Ýmir setti þá átta mörk í stórsigri gegn HK. Þar var Baldvin Dagur Vigfússon atkvæðamestur með þrennu á meðan Reynir Leó Egilsson skoraði tvö.
Kári hafði svo betur gegn Hamri þegar liðin mættust í Hveragerði. Hektor Bergmann Garðarsson skoraði fyrstu tvö mörk leiksins áður en Andri Júlíusson innsiglaði sigurinn í síðari hálfleik. Lokatölur 1-3.
Að lokum rúllaði KFA yfir Augnablik í leik þar sem heimamenn skiptu mörkunum sanngjarnt á milli sín svo lokatölur urðu 5-1.
Ýmir 8 - 0 KH
1-0 Baldvin Dagur Vigfússon ('12 )
2-0 Reynir Leó Egilsson ('25 )
3-0 Reynir Leó Egilsson ('30 )
4-0 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('45 )
5-0 Baldvin Dagur Vigfússon ('50 )
6-0 Baldvin Dagur Vigfússon ('73 )
7-0 Steingrímur Dagur Stefánsson ('75 )
8-0 Andri Már Harðarson ('85 )
Reynir S. 3 - 1 Hafnir
1-0 Jordan Smylie ('11 )
2-0 Bergþór Ingi Smárason ('66 )
2-1 Bergsveinn Andri Halldórsson ('73 )
3-1 Magnús Magnússon ('75 )
Hamar 1 - 3 Kári
0-1 Hektor Bergmann Garðarsson ('3 )
0-2 Hektor Bergmann Garðarsson ('15 )
1-2 Georg Ethan Guðjohnsen Mitchell ('42 )
1-3 Andri Júlíusson ('67 )
KFA 5 - 1 Augnablik
1-0 Imanol Vergara Gonzalez ('5 )
2-0 Adam Örn Guðmundsson ('20 )
3-0 Arnar Bjarki Björgvinsson ('23 )
3-1 Elmar Daði Ívarsson ('76 )
4-1 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('83 )
5-1 Marteinn Már Sverrisson ('90 )
Rautt spjald: Hrannar Bogi Jónsson , Augnablik ('89)
Athugasemdir