Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
„Here we go!" á félagaskipti Roony Bardghji
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti Roony Bardghji til Barcelona.

Börsungar greiða aðeins 2 milljónir evra fyrir Bardghji, auk árangurstengdra bónusgreiðslna. Þar að auki heldur FC Kaupmannahöfn hluta af endursölurétti leikmannsins.

Bardghji á aðeins sex mánuði eftir af samningi sínum við danska stórveldið og skiptir því um félag ódýrt. Þessi efnilegi Svíi verður tvítugur í nóvember en hann missti af stærsta hluta síðustu leiktíðar vegna slæmra meiðsla. Tímabilið 2023/24 skoraði hann 10 mörk í 36 leikjum með FCK.

Hann var um tíma liðsfélagi Hákons Arnars Haraldssonar, Orra Steins Óskarssonar og Ísaks Bergmanns Jóhannessonar í Kaupmannahöfn. Þeir hafa allir skipt um félag.

Orri og Bardghji verða nú andstæðingar í spænsku deildinni á næstu leiktíð.
Athugasemdir