Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 20:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Man Utd leggur fram nýtt tilboð í Mbeumo
Mynd: EPA
Manchester United hefur lagt fram nýtt tilboð í Bryan Mbeumo, framherja Brentford. Sky Sports og BBC greina frá þessu.

Brentford hafnaði 45 milljón punda tilboði, sem hefði getað hækkað upp í 55 milljónir punda, frá Man Utd í leikmanninn fyrr í þessum mánuði.

Viðræðurnar munu halda áfram í þessari viku en hann yrði annar leikmaðurinn til að ganga til liðs við Man Utd á eftir Matheus Cunha sem gekk til liðs við Man Utd frá Wolves.

Man Utd borgaði 62,5 milljónir punda fyrir Cunha en talið er að Brentford vilji fá svipaða upphæð fyrir Mbeumo.
Athugasemdir
banner