Fótbolti.net leitar að áhugasömum aðilum til að koma til liðs við breiðan hóp íþróttafréttamanna sem fjallar daglega um fótbolta.
Við leitum eftir fólki sem hefur ástríðu fyrir fótbolta og hefur áhuga á því að fjalla fyrst og fremst um íslenskan fótbolta.
Meðal þess sem við erum að leitast eftir er fólk í umfjallanir um leiki í íslenska boltanum; textalýsingar og viðtöl.
Fótbolti.net hefur árum saman verið ein mest heimsótta vefsíða landins en samkvæmt vefmælingum Gallups eru um 300.000 flettingar á síðuna á hverjum einasta degi.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband gegnum [email protected]
Athugasemdir