Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Staðfestir komu Modric til Milan
Mynd: EPA
Igli Tare nýráðinn yfirmaður fótboltamála hjá AC Milan er búinn að staðfesta að króatíska goðsögnin Luka Modric sé á leið til félagsins.

Hinn 39 ára gamli Modric er staddur í Bandaríkjunum þessa dagana þar sem hann spilar með Real Madrid á HM. Hann rennur þó út á samningi um mánaðamótin og fær ekki nýjan samning í Madríd.

Modric, sem verður 40 ára í september, ætlar þó ekki að leggja skóna á hilluna. Hann telur sig ennþá hafa margt að bjóða á fótboltavellinum og er spenntur fyrir að reyna fyrir sér hjá nýju félagi eftir rúman áratug með Real.

„Við erum tilbúnir til að krækja í Luka Modric, við þurfum nýja leiðtoga í hópinn. Modric getur orðið lykilmaður fyrir okkur. Hann vill að við búum til samkeppnishæft lið til að berjast um titla og það er markmiðið okkar í sumar," sagði Tare meðal annars í gær.
Athugasemdir
banner