Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gúmmíkurlið ekki enn komið til Eyja
Af Hásteinsvelli í maí í fyrra.
Af Hásteinsvelli í maí í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur ekki enn getað spilað á gervigrasinu á Hásteinsvelli þar sem gúmmíkurl, sem notað er sem fylliefni í völlinn, hefur ekki enn borist til Vestmannaeyja. Eyjamenn vonast til þess að það berist í þessari viku, en það er þó ekki orðið klárt.

Grasið var tilbúið í lok síðasta mánaðar og var stefnan sett á að spila gegn FH í 9. umferðinni á Hásteinsvelli. Það tókst ekki og hefur ÍBV áfram haldið að spila á Þórsvelli.

Karlaliðið mætti Aftureldingu á Þórsvelli í gær og kvennaliðið á leik gegn Fylki í Lengjudeildinni á Þórsvelli í kvöld.

Samkvæmt KSÍ á fyrsti leikur á Hásteinsvelli að vera leikur kvennaliðs ÍBV og Grindavíkur/Njarðvíkur 4. júlí. Tveimur dögum seinna á svo karlaliðið leik gegn Víkingi.
Athugasemdir
banner
banner
banner