Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal að ganga frá Kepa
Mynd: EPA
Arsenal er að ganga frá kaupum á spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga fyrir 5 milljónir punda.

Hann kemur til félagsins úr röðum Chelsea og tekur við af Neto sem varamarkvörður David Raya.

Kepa er 30 ára gamall og hefur hæfileikana til að veita Raya samkeppni um byrjunarliðssæti, en Kepa er enn í dag dýrasti markvörður í sögu fótboltans. Hann kostaði Chelsea rúmlega 70 milljónir punda sumarið 2018.

Arsenal mun ganga frá kaupum á Kepa í vikunni eða næstu viku og kynna hann svo til leiks.
Athugasemdir
banner