Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson verður áfram með Fiorentina en ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að félagið hafi náð samkomulagi við Genoa um kaupverð.
Albert lék á láni með Fiorentina frá Genoa á liðnu tímabili en meiðsli settu strik í reikninginn og hann náði ekki alveg að sýna sínar bestu hliðar.
Albert lék á láni með Fiorentina frá Genoa á liðnu tímabili en meiðsli settu strik í reikninginn og hann náði ekki alveg að sýna sínar bestu hliðar.
Fiorentina var með ákvæði um að geta keypt hann á 17 milljónir evra en eftir viðræður við Genoa náði félagið samkomulagi um 13 milljónir evra.
Það urðu stjóraskipti hjá Fiorentina nýlega en Stefano Pioli, fyrrum stjóri AC Milan, tók við stjórnartaumunum. Hann fékk sóknarmanninn Edin Dzeko til liðsins og verða Albert og Dzeko því samherjar í sóknarleik Fiorentina næsta tímabil.
Athugasemdir