DIrk Kuyt, fyrrum leikmaður Liverpool, var orðaður við aðstoðarþjálfarastarf félagsins en hann er að öllum líkindum að taka við aðalþjálfarastarfi í Hollandi.
Kuyt var síðast stjóri Beerschot í Belgíu. Hann tók við liðinu í desember 2023 og liðið vann næst efstu deild undir hans stjórn. Liðið féll hins vegar strax aftur á síðasta tímabili og hann var látinn taka pokann sinn.
Hollenski miðillinn VI greinir frá því að Kuyt sé að taka við stjórastarfinu hjá FC Dordrecht sem leikur í næst efstu deild í Hollandi.
Liðið fór í umspil um sæti í efstu deild en tapaði gegn Rúnari Þór Sigurgeirssyni og félögum í Willem II. Willem II tapaði úrslitaleiknum og spilar því einnig í næst efstu deild á næstu leiktíð.
Melvin Boel var stjóri Dordrecht en hann hefur verið ráðinn stjóri Go Ahead Eagles, fyrrum félag WIllums Þórs Willumssonar.
Athugasemdir