Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gyökeres ætlar ekki að mæta á æfingar
Gyökeres hjálpaði Sporting að vinna bæði deild og bikar á árinu. Honum líður eins og félagið hafi svikið sig.
Gyökeres hjálpaði Sporting að vinna bæði deild og bikar á árinu. Honum líður eins og félagið hafi svikið sig.
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres ætlar ekki að mæta aftur á æfingu hjá Sporting CP. Hann fer fram á að vera seldur frá félaginu sem fyrst.

Gyökeres er ekki ánægður með starfshætti Sporting eftir að félagið lofaði að selja hann fyrir 70 milljónir evra í sumar og hafnaði svo tilboðum í hann.

Arsenal er meðal félaga sem var tilbúið til að bjóða 70 milljónir, en Sporting hækkaði verðmiðann og vill nú fá 100 milljónir evra - sem samsvarar riftunarákvæði leikmannsins. Félagið hefur þannig rofið heiðursmannasamkomulag við leikmanninn.

Af þeim ástæðum hefur Gyökeres neitað að mæta á fundi með stjórnendum til að hreinsa andrúmsloftið og ætlar hann ekki að mæta á æfingar. Portúgalski miðillinn A Bola greinir frá þessu.

Gyökeres er 27 ára gamall og kom að 67 mörkum í 52 keppnisleikjum með Sporting á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir
banner