Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða í dag - Chelsea þarf að ná í úrslit
Mynd: EPA
Keppni í C- og D-riðlum á HM félagsliða lýkur í nótt en Chelsea þarf að ná í úrslit gegn Esperance frá Túnis til að komast áfram.

Chelsea er í 2. sæti D-riðils en liðið þarf að ná í stig til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Það er ljóst að liðið getur ekki endað á toppnum eftir tap gegn Flamengo sem mætir LAFC sem er úr leik. Chelsea verður án Nicolas Jackson sem fékk rautt spjald gegn Flamengo í síðustu umferð.

Í D-riðli er Bayern komið áfram og Benfica í ansi góðri stöðu. Liðið er með 6+ í markatölu en Boca Juniors með -1. Ef Benfica tapar gegn Bayern og Boca vinnur upp markatöluna kemst argentíska liðið áfram.

HM félagsliða
19:00 Auckland City - Boca Juniors
19:00 Benfica - Bayern
01:00 Esperance - Chelsea
01:00 Los Angeles FC - Flamengo
Athugasemdir
banner