35 ára reynsluboltinn, Jordan Henderson, er í dag orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina. Hann er orðaður við Nottingham Forest og líka franska félagið Marseille.
Henderson er í dag leikmaður Ajax í Hollandi. Hann er fyrrum leikmaður Sunderland og var lengi fyrirliði Liverpool.
Daily Mail fjallar um að Henderson geti farið frítt frá Ajax í sumar vegna klásúlu í samningi hans.

Ef hann virkjar ákvæði í samningi sínum fyrir miðjan júlí getur hann farið án þess að borga þurfi fyrir hann.
Þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall hefur enski miðjumaðurinn haldið sæti sínu í enska landsliðshópnum.
Athugasemdir