Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   mið 25. júní 2025 06:38
Ívan Guðjón Baldursson
Gullbikarinn: Jamaíka úr leik - Sádi-Arabía áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Riðlakeppninni í Gullbikarnum lauk í nótt og eru átta lið búin að tryggja sig áfram í útsláttarkeppnina.

Mexíkó og Kosta Ríka fara upp úr A-riðli eftir jafntefli innbyrðis í lokaumferðinni og þá fara bæði Kanada og Hondúras upp úr B-riðlinum.

Kanada tryggði sér toppsætið með 2-0 sigri gegn El Salvador í nótt, þar sem Jonathan David klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik en bætti upp fyrir klúðrið með marki í síðari hálfleik. Tajon Buchanan innsiglaði sigurinn en hann er meðal markahæstu leikmanna mótsins með 3 mörk skoruð.

Kanada lagði Hondúras að velli 6-0 í innbyrðisviðureign liðanna og mætir Gvatemala í 8-liða úrslitum. Gvatemala endaði í öðru sæti C-riðils á kostnað Jamaíka, sem tapaði innbyrðisviðureigninni og steinlá svo í lokaumferðinni gegn Panama.

Panama er ein af tveimur þjóðum sem fer í gegnum riðlakeppnina með fullt hús stiga ásamt Bandaríkjunum. Framherji liðsins Ismael Diaz er markahæsti maður mótsins hingað til, með 5 mörk skoruð.

Bandaríkin sigruðu D-riðil og mæta Kosta Ríka í 8-liða úrslitum en gestaþjóð Sádi-Arabíu endaði í öðru sæti riðilsins og mætir Mexíkó í spennandi slag.

A-riðill:
1. Mexíkó 7 stig
2. Kosta Ríka 7 stig
3. Dóminíska lýðveldið 1 stig
4. Súrínam 1 stig

B-riðill:
1. Kanada 7 stig
2. Hondúras 6 stig
3. Curacao 2 stig
4. El Salvador 1 stig

C-riðill:
1. Panama 9 stig
2. Gvatemala 6 stig
3. Jamaíka 3 stig
4. Gvadelúpeyjar 0 stig

D-riðill:
1. Bandaríkin 9 stig
2. Sádi-Arabía 4 stig
3. Trínidad og Tóbagó 2 stig
4. Haítí 1 stig

8-liða úrslit:
Bandaríkin - Kosta Ríka
Kanada - Gvatemala
Mexíkó - Sádi-Arabía
Panama - Hondúras
Athugasemdir
banner
banner